mánudagur, apríl 02, 2007

Það er svo margt sem mig langar að geta og ekki bara geta heldur líka gera vel, vera góð í.

Mig langar að spila á gítar.
Mig langar að prjóna.
Mig langar að syngja.
Mig langar að taka myndir.
Mig langar að sauma föt.
Mig langar að semja sögur.
Mig langar að læra tungumál.


Nú get ég í sjálfur sér gert þetta allt saman. Mis vel auðvitað en ég sé fram á það að ég geti ekki orðið góð í þessu öllu og það er að fara með mig.

Langar ykkur ekki stundum til þess að geta gert allt vel?