miðvikudagur, febrúar 15, 2006

Nammi nýting mjög góð er, með kúlusúkkið læðist, brauð og egg á pönnu fer, og rauðan brauði klæðist

Ég fór með Helgu í bíó á mánudagskvöldið á Walk the line, mjög góð mynd.
Ég fór með pabba í bíó í gærkvöldi á Munich, mjög góð mynd.

Það var einnig mjög góð nýting á namminu þar sem ég gat notað sama kúlusúkk pokann á báðar myndirnar. Ég reyndi bara að láta ekki á neinu bera þegar inní bíóið var komið svo ég yrði ekki tekin með ólöglegt efni eða nammi. Ég hef samt aldrei lennt í því að fara í vitlausan sal í bíó. Okkur pabba var farið að gruna ýmislegt þegar að myndin byrjaði í fangelsi með svörtum fangavörðum. Ég sannfærðist svo algerlega þegar ég sá nafninu hennar Jennifer Aniston bregða fyrir þannig að við urðum að flýja A salinn og leita skjóls í sal B. Greinilega bara einfeldni í mér að halda að Munich yrði sýnd í A.

Ef að þú tekur eina bónusbrauðsneið og gerir gat í miðjuna og setur hana á pönnu og brýtur egg og lætur rauðuna passa í gatið og svo seturðu tvær skinskusneiðar og ost yfir og lætur herlegheitin steikjast í nokkrar mínútur þá ertu komin með hreint ágætis kvölverð. Ég hef samt aldrei gert svona bara mamma. Kannski ég gæti samt klórað mig út úr því þar sem ég virðist víst kunna aðferðina. Mér hefði samt aldrei dottið í hug að gera gat á brauðið.

Ég gerði samt svolítið slæmt í dag en ég faldi mig á bak við vegginn þannig að það var allt í lagi.

7 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Mig langar dáldið á Jennifer Aniston myndina...Derailed er það ekki? Hef heyrt að hún sé góð.:)

He he, ég var hugrakkari, faldi mig ekki á bak við vegginn. En þú hjálpaðir mér samt með því að fela mig á bak við tölvuna. ;)

11:14 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Derailed er mjög góð mynd sko...soldið ógeðsleg á köflum...en

10:35 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Þetta er greinilega svo mikilvæg færsla að gott er að setja hana inn tvisvar ;) He he.

Verð að testa þetta með brauðið, líst vel á þetta, verst að ég held að ég gæti kúðrað því þrátt fyrir færni mína í eldamennsku.

Að skilja það hvernig þið tímið að fara svona oft í bíó mun ég aldrei skilja, grjóthörð sæti í þokkabót. En þetta er fínt áhugamál eins og hvert annað.

11:52 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Það eru samt komin ný sæti í borgarbíó. ;)

12:44 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hvað gerðiru?

3:49 e.h.  
Blogger Nannnnnna said...

Mér finnst nú fullgróft þegar maður er orðin svo latur að blogga að maður setur sömu færsluna inn tvisvar Abba...
Annars er planið að fara á Walk the line sem fyrst.

4:35 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég rak augun í þetta í morgun að það væru tvær. Það var einungis ein í gærkvöldi. Ég biðst velvirðingar og óska þeim sálum sem skaða hafa hlotið skjótum bata. Svo ættu sumir ekki að vera að tala um bloggleti við nokkurn mann. Taki það til sín sem eiga.

Svo ég svari þér Kata þá skrópaði ég í þýsku en höfum ekki hærra um það. Veggirnir hafa eyru.

Valborg, ég hefði aldrei tímt að fara tvö kvöld í röð ef ég hefði þurft að borga. Pabbi borgar nefnilega alltaf, það er skilyrðið fyrir því að ég fari með honum í bíó. Svo er gaman í bíó. Þú ættir í alvöru að koma einhvern tímann með.

5:18 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home