Eintóm skemmtilegheit
Í dag, nánar tiltekið fyrir hádegi eða eitthvað í kringum 9 (hann giskar á 5 mín yfir 9), náði pabbi merkum áfanga í lífi sínu. Hálfa öldin er orðin staðreynd og hér með er hann orðinn að hálföldungi. Að því tilefni var peruterta á borðum ásamt öðru góðgæti.
Fleira skemmtilegt, prófin eru búin og fríið byrjað.
Listi yfir það sem ég ætla að gera í fríinu, vei.
* Sofa - Það er gaman og hollt að sofa. Einnig er þetta eitt af fáu sem hefur þessi orð saman í setningu á jákvæðan hátt.
* Skoða afmælisgjafirnar hans pabba nánar - Þá sérstaklega þessa sem hann fékk frá fjölskyldunni en það var The Beatles Anthology. Ég neita öllum ásökunum um það að umræddur pakki hafi verið keyptur einungis vegna þess að mig langaði í hann, það getur aftur á móti ekki skaðað eins og ég sagði. Einnig fékk hann afar áhugaverða draumaráðningabók og Þóra, það kemur margt í ljós varðandi geimveru-lost drauminn minn
* Horfa á lost - Ég er komin þremur þáttum á eftir og er varla talin maður með mönnum lengur. Auk þess hef ég heyrt að spennan fari stig vaxandi.
* Lesa John Lennon bókina - Pabbi fékk hana í jólagjöf en hún varð því miður að víkja fyrir skólabókunum.
* Tónó - Það er ekki frí allsstaðar og tónó hefur verið eilítið vanræktur síðustu tvær vikur eða svo. Einnig er söngpróf á næsta leyti og svo eru tónlistarsögu-, hljómræði- og tónheyrnarprófið eftir. Júhú.
* Hlusta á vínylplötunar sem til eru á heimilinu - Pink floyd, Bítlarnir, Neil diamond, Trúbrot, Hlh-flokkurinn, Elton John, John Lennon, Árný og svo margt, margt fleira.
* Skoða útsöluna sem er í Bókval nánar - Ég hef gaman af bókum og auk þess fékk ég pening fyrir að passa umrædd börn. Ég fékk reyndar líka borgað í hakki og beikoni.
Skemmtilegur listi, vei.
Fleira er ekki planað en ég er opin fyrir öllu, svona nánast.
Annars held ég að samband mitt og klukkunnar eigi eftir að blessast. Hún er nefnilega svo elskuleg að draga inn andann áður en hún slær. Ég verð að játa að það gerir líf mitt töluvert auðveldara.
Einnig verð ég að deila því með ykkur að það var strákur hjá Jay Leno áðan sem spilaði afmælissönginn og crazy frog lagið með höndunum einum saman. Spes.
Er farin að horfa á Lost.
Þangað til næst...

9 Comments:
Blessuð! Lýst alveg sérstaklega vel á hvað á ða gera í þessu fríi, frí eru til þess að njóta þeirra :) Og bókmenntirnar auðvitað, það er fátt skemmtilegra en að lesa, sem minnir mig á það að ég ætlaði að fá fólkið í kjallaranum lánað um ja fyrir um ári síðan! Sjáumst á eftir :) Valborg
Já, kannski ég komi með bókina á eftir. Þá getur þú komið með gallabuxnaklúbbinn líka.
Hæ.
Framlenging á lista:
* Leika við Helgu
* Koma með Helgu á subway (ekki í dag samt, var þar)
* Koma með Helgu í bíó...veit reyndar ekki um neina góða mynd í bíó...
* :)
Hafðu það gott í fríinu...mitt byrjar á morgun. ;)
Hey og á ég þá bara ekkert að fá að vera með ?
Svo framlegni ég listann ennfrekar:
-Abba að kenna Helgu að lesa sögu og skáldbækur.
-Að leyfa mér að koma með á subway!
-Hjálpa Valborgu að læra um völuspá og ragnarrök
-vera hressar og glaðar stelpur og brosa í öllu fríinu!
Og já Abba, Helga fékk eina bók í jólagjöf sem hún vill ekki lesa, legg til að við kennum henni gott að meta í bókmenntaheiminum ;)
Ég er alltaf til í subway og mig langara að sjá bíómyndina eftir bókinni Minningar Geisju. Ég skal líka gera mitt besta til þess að fá Helgu til þess að kunna að meta bækur. Ég er samt ekki jafn viss um völuspána og ragnarrökin. Mig minnir samt að ég eigi ágætis glósur einhversstaðar um þessa merku atburði.
Glósurnar væru snilld, fann líka slatta af þeim á netinu. Man ekki um hvað Minningar Geisju var en held að hún sé snilld. Hey Abba, næst þegar við hittumst verðum við að muna að skiptast á bókum :) Þetta var nú nokkuð góður kirkjuprakkarafundur hjá okkur í dag, held að við finnum allavega ekki betri tröll!
Góð tröll...voruð þið að leika þau eða?
Jebb og þau voru ekkert smáflott. Mitt var til dæmis mjög frátt á fæti ef maður getur sagt það.
Ég ætla nú að troða mér inn í þetta samtal :P En mér líst vel á þetta plan :) Ég er búin að sofa fram að hádegi og fara svo í sveitina og vera þar mest alann daginn :D Búin að moka skít, fara á hestbak og baða hesta og svona :) og slasa mig náttla, má ekki gleyma því :S En það er ekkert mjög alvarlegt sem betur fer :)
Skrifa ummæli
<< Home